top of page

Ég verð með sex danstíma íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi nú í haust:

6. nóvember 

20:00 Rassahristur - UPPSELT

21:00 Burlesque 

11. nóvember

19:00 Skvísulæti

20:00 Broadway

14. nóvember

20:00 Beyoncé
21:00 Magadans 

Ég minni á að það er takmarkað pláss í tímana svo ég hvet ykkur til að skrá ykkur sem fyrst til að missa ekki af plássi. Nánar má lesa um tímana fyrir neðan gula formið.

Skráning
Á hvaða námskeið viltu skrá þig? Það má merkja við fleiri en eitt. Uppselt er í rassahristur.

Verð:
Einn tími 3900 kr

Tveir tímar 7200 kr (3600 pr tími)

Þrír tímar 9900 kr (3300 pr tími)

Fjórir tímar 12.000 kr (3000 pr tími)

Fimm tímar 13500 (2700 pr tími)

Sex tímar 14.400 (2400 pr tími)
 

Ofan á þetta leggst 248 króna tilkynningar- og greiðslugjald. Ég sendi ykkur reikning í heimabanka þegar lágmarksfjölda hefur verið náð.

Reikningur kemur frá Konto-reikningaþjónustu og krafa birtist í netbanka á þeirri kennitölu sem gefin er upp hér fyrir ofan. Skráning telst fullgild þegar greiðslu er lokið og er bindandi eftir greiðslu. Ef þið getið ekki nýtt tímann ykkar getið þið gefið annari manneskju hann.

Takk fyrir skráninguna. ​

Ég verð í sambandi

innan sólarhrings.

ezgif.com-video-to-gif-5.gif

RASSAHRISTUR
6. nóvember kl. 20:00

Skemmtilegur tími þar sem jafnt er losað um mjaðmir og hláturtaugar. Góðum partýtýrikkum lofað sem og frábærri tónlist. Öðruvísi þolæfingar og gott hláturskast. Farið er í shimmy, twerk, booty clap og sitthvað fleira.

Fatnaður: Mjúkur fatnaður sem hindrar ekki hreyfingar. Berfættar eða í innanhússíþróttaskóm.

Screenshot 2021-03-19 at 14.33.12.png

Broadway
11. nóv kl. 20:00

Gamaldags, klassískur og klisjulegur jazz í anda Chicago og Bob Fosse. Stutt upphitum og svo lærum við dans við All that Jazz.

Fatnaður: Mjúkur fatnaður sem hindrar ekki hreyfingar, dansskór sem fara vel með gólf eða berfættar.

Maackstarr-11.jpg

BURLESQUE
6. nóv kl. 21:00

Burlesque er kynþokkafullur kabarettdans sem gengið hefur í endurnýjun lífdaga síðastliðin ár og er Margret frumkvöðull formsins á Íslandi. Gott fyrir sjálfstraustið og líkamann og frelsandi fyrir sálina. Hleyptu þinni innri dívu út í vernduðu umhverfi. Örsnöggt farið yfir sögu burlesquesins, upphitun, grunnspor og dans við lagið Why don't you do Right? með Julie London. 
Fatnaður: Mjúkur fatnaður sem hindrar ekki hreyfingar, dansskór sem fara vel með gólf eða berfættar.

116153715_3307284042663025_7333153206642

BEYONCÉ
14. nóvember kl. 20:00

Hársveiflur, twerk og almenn skvísulæti í anda poppdrottingarinnar. Upphitun, grunnspor, samhæfing, kóreógrafía. 

Fatnaður: Mjúkur fatnaður sem hindrar ekki hreyfingar. Innanhússíþróttaskór.

"Það voru ekki liðnar 5 mínútur af fyrsta tímanum þegar ég hóf að dansa sem aldrei fyrr. Þessar fyrstu mínútur voru skemmtilegri en öll fjórtán árin mín í ballet til samans og eftir tímann skokkaði ég sveitt og hamingjusöm heim. Ég bæði lærði að dansa á nýjan hátt og að meta líkama minn. Allt í einu spilaði hamborgararassinn minn lykilhlutverk í danssporum, aldrei hefði ég trúað því."

            - Anna Margrét, nemandi

mynd_vera_páls_1.jpg

Skvísulæti
11. nóvember kl. 19:00

Langvinsælasta dansnámskeiðið sem ég hef kennt í Kramhúsinu. Ég bjó til dans- og styrktartíma sem MIG langaði að fara í. Hrærigrautur af skvísumúsík, útrás, styrk, þoli og dansi. Tónlistarvalið tekur mið af því hvernig tónlist þið fílið og svo er bara GÓ!

Fatnaður: Mjúkur fatnaður sem hindrar ekki hreyfingar. Berfættar eða í innanhússíþróttaskóm.

magadans2.png

MAGADANS
14. nóvember kl. 21:00

Dansinn úr austrinu þar sem dulúð og mjaðmahnykkjum er blandað saman í ljúfan kokkteil sem styrkir bak og maga. Magadans er aldagamall dans þar sem kvenlíkaminn nýtur sín og unnið er með hvern og einn líkama. Margrét sjálf byrjaði í magadansi vegna bakverkja og opnaði hann fyrir henni heim sjálfsástar og líkamsvirðingar. Í tímanum förum við stutt yfir sögu dansins, förum í grunnspor og lærum stuttan dans.

Fatnaður: Mjúkur fatnaður sem hindrar ekki hreyfingar. Berfættar. Margrét kemur með peningabelti til að binda um mjaðmir... og nei, það þarf ekki að sýna magann frekar en hver og ein vill.

452704024_958640319606042_8129089912015408784_n-2.jpg

Um Margréti

Margrét hefur starfað sem danskennari í 20 ár í Kramhúsinu og er einn vinsælasti kennari hússins. Jákvæð sjálfsmynd og líkamsvirðing eru höfð að leiðarljósi í tímunum þar sem geðrækt er ekki síður mikilvæg en líkamsrækt.

Margrét hlaut Íslensku dansverðlaunin 2014 sem besti danskennarinn. Hún er skemmtilegur kennari sem útskýrir á aðgengilegan hátt og sérhæfir sig í að kenna byrjendum og fólki sem hefur aldrei dansað áður. Hún var sérstakur danskennari þýska handboltalandsliðs karla í upptakti Evrópumeistaramótsins í handbolta 2016. Árið 2018 var hún í danskórnum í Rocky Horror í Borgarleikhúsinu og verður í Ladda-sýningunni í Borgarleikhúsinu í vor. Margrét hefur farið í fjölda sýningarferðalaga sem burlesquedansmær um Evrópu og Bandaríkin og er fastaskemmtikraftur á hinum goðsagnakennda kabarettstað The Slipper Room í New York.

Margrét á einnig að baki fjölmiðlaferil og hefur starfað við dagskrárgerð á RÚV, Stöð 2 og á Hringbraut.

152347980_1321872234857855_3749497537029134551_n_edited.png

ALGENGAR
SPURNINGAR

Er erfitt að taka tvo tíma í röð? Erfiðleikarnir felast aðallega í einbeitingu. Ég raða þó tímunum upp að fyrri tími á dagskrá er hita- og brennslutími og sá seinni í rólegri kantinum.

 

Ég hef engan dansbakgrunn, er með tvo vinstri fætur og er taktlaus.... get ég mætt? Uh, frábært! Ég sérhæfi mig í að kenna fólki eins og þér. Ef allir kynnu að dansa væri ég atvinnulaus. Oftast snýst þetta um samhæfingu og hana er hægt að læra og æfa og feika. Ég kenni ykkur að vinna með það sem þið getið og hafið.

Er aldurstakmark? Börn eru mismunandi eins og þau er mörg. Leiðbeinandi aldurstakmark er 13 ára. Ég tala mikið um grindarbotn, samfarahreyfingar og slíkt, svo þið berið ábyrgð á ykkar barni. Burlesque-ið er þó í grunninn strippdans, svo þar er 18 ára aldurstakmark. 

bottom of page